Málvilla á bol Begga Ólafs vekur athygli

Beggi Ólafs í bolnum fræga.
Beggi Ólafs í bolnum fræga. Skjáskot/Instagram

Fyrirlesarinn Berg­sveinn Ólafs­son, eða Beggi Ólafs eins og hann er kallaður, gaf nýlega út bókina Tíu skref í átt að inni­halds­ríku lífi. Það er þó ekki bara bókin sem hefur vakið athygli. Málvilla á bol sem hann notar til þess að auglýsa bókina hefur einnig vakið athygli.  

„Heimsóttu einmana afa þinn áður en það verður um seinan,“ stendur á bol Begga. Við myndina á Instgram má einnig sjá setninguna og segir Beggi þessa gjörð vera skref númer fjögur. 

„Sögnin er að heimsækja, boðháttur sækja er sæktu, heimsæktu einmana afa þinn er því rétt,“ segir Atli Steinn Guðmundsson, blaðamaður og prófarkalesari hjá mbl.is og Morgunblaðinu. „Villan kemur líklega til af því að fólk virðist þarna mynda boðhátt sagnarinnar af þátíðinni ég heimsótti, þú heimsóttir en ekki nafnhættinum að heimsækja sem væri eðlilegra. Nákvæmlega af sömu rótum segir fólk keyptu þegar réttur boðháttur er kauptu. Þar er jú á ferð sögnin að kaupa, ekki sögnin að keypa.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler