Fasteignasali en ekki hjákona

Tristan Thompson sást nýlega á veitingastað með ljóshærðri konu.
Tristan Thompson sást nýlega á veitingastað með ljóshærðri konu. AFP

Körfuboltamaðurinn Tristan Thompson sást á dögunum úti að borða með ljóshærðri konu í Boston. Sögusagnir fóru á kreik að Thompson væri enn og aftur að láta góma sig í framhjáhaldi. Ekkert er hins vegar til í sögunum því hin ljóshærða kona hefur verið nafngreind og er hún fasteignasali en ekki hjákona Thompsons.

Thompson er í sambandi með raunveruleikastjörnunni Khloé Kardashian og eiga þau saman dótturina True. Þau tóku aftur saman í sumar eftir meira en árs aðskilnað en þau hættu saman eftir að hann hélt fram hjá henni. Það var ekki í fyrsta skipti en hann sást með fjölda kvenna þegar hún var ólétt af barni þeirra.

TMZ greindi frá því vikunni að konan sem Thompson sást með væri fasteignasali að nafni Julia. Hann hafi áður skipt við hana en hún hjálpaði honum að finna heimili í Kaliforínu og nú væru hún að hjálpa honum við fasteignaleit í Boston. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant