Keypti villu handa ungu kærustunni í Flórída

Mick Jagger keypti hús í Flórída handa ungu kærustunni.
Mick Jagger keypti hús í Flórída handa ungu kærustunni. AFP

Tónlistarmaðurinn Mick Jagger fjárfesti á dögunum í stærðarinnar húsi handa kærustu sinni Melanie Hamrick. Húsið er í Sarasota í Flórídaríki í Bandaríkjunum. Jagger er 77 ára en Hamrick 34 og því 43 ár sem skilja þau að.

Jagger og Hamrick eiga fjögurra ára gamlan son saman en Hamrick lét af störfum sem ballettdansari á síðasta ári til að verja meiri tíma með kærasta sínum og barni.

Þetta er ekki fyrsta húsið sem Jagger kaupir handa Hamrick en árið 2016 keypti hann íbúð handa henni í New York. Hann á líka hús í London í Bretlandi hvar þau eru sögð ætla að verja jólunum.

Samband Jaggers og Hamrick hefur sjaldan verið betra en þau hafa átt í stormasömu sambandi. Gengur svo vel hjá þeim að heimildir Page Six herma að brúðkaup gæti verið á næsta leiti.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant