Britney lét hárið fjúka fyrir jólin

Britney Spears er búin í jólaklippingunni.
Britney Spears er búin í jólaklippingunni. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Britney Spears er búin í jólaklippingunni þetta árið. Hún birti mynd af klippingunni en hún skartar nú axlasíðu hári. 

„Fór í klippingu. Þið vitið hvað sagt er; út með það gamla og inn með það nýja. Biðjum öll saman,“ skrifaði Spears undir mynd af nýju klippingunni. 

Ýmislegt hefur gengið á í lífi Spears undanfarnar vikur en faðir hennar, Jamie Spears, tjáði sig um lögráðamannsmál hennar í vikunni. Þar sagðist hann ekki hafa talað við dóttur sína síðan í ágúst og bætti við að hann saknaði hennar. 

Jamie gegndi hlutverki lögráðamanns hennar í 12 ár þangað til hann steig til hliðar vegna veikinda á síðasta ári. Britney sótti svo um að hann yrði ekki skipaður lögráðamaður hennar aftur en hefur enn ekki haft erindi sem erfiði. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant