Ósátt fyrrverandi selur gullplötur Collins

Orianne Cevey og Phill Collins á brúðkaupsdaginn sinn árið 1999.
Orianne Cevey og Phill Collins á brúðkaupsdaginn sinn árið 1999. REUTERS

Deilur tónlistarmannsins Phil Collins og fyrrverandi eiginkonu hans, Orianne Cevey, halda bara áfram. Nú er Cevey að selja gullplötur tónlistarmannsins, verðlaun og aðra muni. Collins seldi húsið ofan af fyrrverandi eiginkonu sinni nýverið og er hún að flytja í minna hús. 

Collins kærði fyrr­ver­andi eig­in­konu sína í fyrra fyr­ir að halda til í hús­i sínu í Miami með núverandi eiginmanni. Eftir að málinu lauk með sölu hússins brást fyrrverandi við með að setja á sölu muni sem gefa henni ekki lengur gleði að því fram kemur vef Page Six. 

Cevey er sögð ætla að selja gullplötur fyrrverandi eiginmanns síns á aðeins 100 Bandaríkjadali. Á meðal þess sem er til sölu er gullplata plötunnar The Principle of Moments með Robert Plant. Plant gaf út plötuna hjá plötufyrirtæki Collins. 

Cevey er að selja Chanel-töskur, föt, verðmæta skartgripi, hönnunarstrigaskó og nokkur úr frá Rolex. Einnig er að finna á uppboðinu frímerkjasafn. 

„Hún er að flytja í minna húsnæði og er að losa sig við föt og skartgripi sem hún notar ekki lengur. Ég meina hún á fimm þúsund skópör en er bara með tvo fætur – hún getur ekki gengið í þeim öllum,“ sagði talsmaður Cevey. Talsmaðurinn sagði að Cevey hefði farið að ráðum Marie Kondo og losað sig við muni sem veita henni ekki ánægju. 

Sumt er á uppboði hjá Kodner Galleries og fer tíu prósent af sölunni til góðgerðarmála. 

Cevey og Collins gengu í hjónaband árið 1999 en skilnaður þeirra gekk í gegn árið 2008. Þau byrjuðu aftur saman nokkrum árum seinna en hættu saman þegar tónlistarmaðurinn komst að því hún hafði gengið í hjónaband með öðrum manni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler