Stjúpdóttir Kamölu í fyrirsætubransann

Ella Emhoff og bróðir hennar Cole Emhoff við innsetningarathöfn Joes …
Ella Emhoff og bróðir hennar Cole Emhoff við innsetningarathöfn Joes Bidens og Kamölu Harris. AFP

Ella Emhoff, stjúpdóttir Kamölu Harris varaforseta Bandaríkjanna, fékk nýlega samning við eina af virtustu módelskrifstofum í heimi, IMG Models. Heimsfrægar fyrirsætur eins og Gisele Bündchen Gigi og Bella Hadid eru einnig með samning við skrifstofuna. Emhoff er dóttir Doug Emhoff, eiginmanns Harris. 

Hin 21 árs gamla Emhoff leggur nú stund á textílhönnun við Parsons School of Design í New York-borg. „Þetta hefur ekkert með líkamsbyggingu, stærð eða kyn að gera lengur,“ sagði Ivan Bart forseti IMG Models í viðtali við New York Times

Hann segist strax hafa tekið eftir henni í forvali demókrata síðastliðið sumar og stuttu seinna hafi IMG Models haft samband við hana. 

„Ég var frekar efins þegar allt þetta með IMG Models fór að gerast því þegar ég var yngri hugsaði ég mér aldrei að þetta yrði hluti af lífinu mínu. Sem einhver, eins og svo margar ungar stelpur, sem átti erfitt með sjálfstraustið, er það ógnvænleg tilhugsun að ganga innn í þennan heim sem einblínir bara á þig og líkama þinn,“ sagði Emhoff við New York Times. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson