Armenía dregur sig úr keppni í Eurovision

Armenía mun ekki taka þátt í Eurovision í ár.
Armenía mun ekki taka þátt í Eurovision í ár. Ljósmynd/Thomas Hanses

Armenía mun ekki senda keppanda í Eurovision-söngvakeppnina í ár. Ríkissjónvarpið í Armeníu, AMPTV, tilkynnti þetta í dag. Í tilkynningunni segir að þrátt fyrir að hafa lagt sig öll fram við að skipuleggja framlag til keppninnar hafi verið ljóst að þau myndu ekki ná að setja saman framlag fyrir síðasta skiladag á lagi sem er í þessum mánuði. 

Í tilkynningu frá Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva segir að Eurovision-samfélagið sé miður sín yfir því að Armenía hafi dregið sig úr keppni í ár. Armenía hafi alltaf komið með spennandi atriði í keppnina en að sambandið skilji vel þær ástæður sem armenska ríkisútvarpið hafi gefið fyrir ákvörðun sinni. 

40 lönd munu því keppa í Eurovision-söngvakeppninni sem fer fram í dagana 18., 20. og 22. maí næstkomandi. 

Eurovision

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant