Líf Britney væri betra án föður hennar

Britney Spears.
Britney Spears. AFP

Faðir Britney Spears er illmennið í sögu poppsöngkonunnar. Britney óskaði nýlega eftir því að Jodi Mont­gomery yrði skipuð ótíma­bund­inn lögráðamaður henn­ar í stað föður hennar. Aðili sem þekkir til stjörnunnar segir að líf Spears væri betra ef faðir hennar væri ekki inni í myndinni. 

„Ef Jodi verður lögráðamaður hennar myndi margt breytast fyrir Britney. Hún er ekki að vinna vegna föður síns. Hún hefur sagt að hún vinni ekki svo lengi sem faðir hennar stjórnar lífi hennar,“ sagði heimildarmaður Page Six. „Britney treystir Jodi Mont­gomery, hún er frábær. Það yrði stór breyting til hins betra.“

Jamie hafði verið lögráðamaður dótt­ur sinn­ar í 12 ár þegar hann steig til hliðar vegna veik­inda sinna í sept­em­ber 2019. Þá var Mont­gomery skipuð tíma­bund­inn lögráðamaður Brit­ney.

Britney er meðal annars sögð íhuga að segja Opruh Winfrey frá lífi sínu í anda viðtalsins sem Harry og Meghan fóru í. Heimildarmaðurinn segir þó að eins og staðan er núna gæti Spears ekki sagt sína sögu í viðtali. Ef faðir hennar væri ekki inni í myndinni væri staðan önnur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson