Hannes næstur í hakkavél Bassa

Bassi Maraj.
Bassi Maraj. Skjáskot/Instagram

Samfélagsmiðlastjarnan Sig­ur­jón Baltas­ar Vil­hjálms­son, bet­ur þekkt­ur sem Bassi Maraj, heldur áfram að valda usla á samfélagsmiðlinum Twitter. 

Í fyrradag tók hann Bjarna Benediktsson fyrir þar sem hann kallaði fjármálaráðherrann meðal annars svindlara og spurði hvar nýja stórnarskráin væri. 

Þræðinum svaraði síðan Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, þar sem hann sagði Bassa ekkert leggja til málefnalegrar umræðu: 

Þú hefur engar hugmyndir, aðeins runu af ókvæðisorðum. Hvernig eigum við að skapa verðmæti? Tryggja frelsi og fjölbreytni? Framfarir? Hagvöxt? Engin svör, aðeins blótsyrði á hrognamáli,“ svaraði Hannes. 

Bassi brást við með því að segja Hannesi að hafa sig hægan, þar sem hann ætti skjáskot af grindr-spjalli þeirra á milli. Grindr er stefnumótaforrit fyrir hinsegin fólk: „Jésus hannes hver hleypti þér á Twitter og áður en þú ferð að rífa þig þá á ég ss af grindr spjallinu okkar.“ 

Áhrifavaldurinn og vinur Bassa, Brynjar Steinn Gylfason, tók í sama streng og svaraði á þræðinum með „já ég líka“.

Svör Bassa til bæði Bjarna Benediktssonar og Hannesar Hólmsteins hafa vakið gríðarleg viðbrögð á Twitter og er svar Bassa til Hannesar nú með yfir 1.200 læk á miðlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant