TikTok stjarna lést í hörmulegu slysi

Rochelle Hager lést þegar tré féll á bíl hennar.
Rochelle Hager lést þegar tré féll á bíl hennar. Skjáskot/TikTok

TikTok-stjarnan Rochelle Hager lést í skelfilegu slysi í Maine á dögunum. Hager, sem hélt úti vinsælum aðgangi á TikTok undir nafninu Roeurboat3, lést þegar tré féll á bíl hennar. 

Lögreglan í Farmington sagði í viðtali við Portland Press Herald að grein af grenitré hefði fallið á bíl hennar í miklum stormi og að Hager hefði látist samstundis. 

Hager var trúlofuð Brittanie Lynn Ritche og stefndu þær að því að gifta sig 16. október. Þær voru opnar um samband sitt á samfélagsmiðlum en Hager var með 130 þúsund fylgjendur og nokkrar milljónir höfðu horft á myndböndin hennar. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson