„Ég þurfti að telja í mig kjark“

Hljómsveitin Vök. Einar Stef gítar- og bassaleikari, Margrét Rán söngkona …
Hljómsveitin Vök. Einar Stef gítar- og bassaleikari, Margrét Rán söngkona og lagahöfundur og Bergur Dagbjartsson trommuleikari. Ljósmynd/Dóra Dúna

Hljómsveitin Vök sendi í dag frá sér nýtt myndband við lagið Lost in the Weekend. Margrét Rán Magnúsdóttir er persónuleg í textagerðinni en textinn við lagið er ákveðið uppgjör við unglingsárin og þá reynslu að koma út úr skápnum. 

Einar Egilsson skrifaði handritið og leikstýrir myndbandinu en leikarinn Snorri Engilbertsson leikur í því. Hann segir söguna fjalla um mann sem hatar dagvinnuna sína. „Hann bíður spenntur eftir hverri helgi svo hann geti týnt sér í tónlist. Hann er einangraður og finnst hann ekki fá viðurkenningu á því hver hann er. Tónlistin hjálpar honum að finna sjálfan sig og brjótast úr sjálfsköpuðum hömlum. Textinn bauð upp á að fagna fjölbreytileikanum með þessum hætti og hvetja fólk til að hafa kjark til að vera það sjálft,“ segir Einar. 

Margrét Rán segist mjög ánægð með útkomuna. „Túlkun Einars á laginu er mjög sönn og Snorri leikur hlutverk sitt frábærlega vel. Lagið fjallar um mína eigin reynslu þegar ég var að koma úr skápnum. Ég þurfti að telja í mig kjark til að koma fram sem sú sem ég var. Tónlistin var sálufélagi minn í þessu uppgjöri við sjálfa mig og djammið var fylgifiskur. Kannski ekki alltaf sá besti en það hjálpaði mér að losa hömlurnar,“ segir Margrét. 

Þetta er fyrsta útgáfa Vakar frá því að hljómsveitin sendi frá sér verðlaunaplötuna In the Dark árið 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant