Systrabönd slær met í Sjónvarpi Símans Premium

Lilja Nótt Þórarinsdóttir fer með eitt af aðalhlutverkunum í Systraböndum.
Lilja Nótt Þórarinsdóttir fer með eitt af aðalhlutverkunum í Systraböndum. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir

Systrabönd, ný íslensk þáttaröð, sló áhorfsmet í Sjónvarpi Símans Premium um páskana en horft var á þættina yfir 210.000 sinnum á tugþúsundum heimila. Þáttaröðin sem framleidd er af Sagafilm kom í heild sinni í Sjónvarp Premium fyrir páska og hefur þannig slegið áhorfsmet í efnisveitu Símans.

Fyrra met setti þriðja þáttaröðin af Venjulegu fólki sem kom út síðasta haust. Heildarfjöldi spilana á efni í Sjónvarpi Símans Premium í páskavikunni var einnig það mesta frá upphafi eða nærri 1,2 milljónir spilana þökk sé frábærum viðtökum á Systraböndum.

Systrabönd eru dramaþættir af bestu gerð, fjalla um hvarf 14 ára stúlku en jarðneskar leifar hennar finnast 25 árum síðar og þá þurfa þrjár æskuvinkonur að horfast í augu við fortíðina.

Þættir um konur, gerðir af konum

Þættirnir hafa fengið mikið og jákvætt umtal síðustu daga á samfélagsmiðlum fyrir yfirburða leik, vandað handrit og góða leikstjórn. Þættirnir hafa einnig fengið mikið hrós fyrir að fjalla um konur frá öðru sjónarhorni en hefur áður verið gert. Þættirnir eru að stórum hluta gerðir af konum en þáttaröðinni er leikstýrt af Silju Hauksdóttur sem kemur einnig að handritasmíðinni ásamt Björgu Magnúsdóttur, Jóhanni Ævari Grímssyni og Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur. Þær Ilmur Kristjánsdóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Lilja Nótt Þórarinsdóttir fara með aðalhlutverkin en Halldóra Geirharðsdóttir, Sveinn Geirsson og María Heba Þorkelsdóttir fara með stór aukahlutverk ásamt fjölda annarra.

„Við erum afskaplega þakklát fyrir þessar frábæru viðtökur. Ég kolféll fyrir sögunni og persónunum þegar hugmyndin kom á frumstigi inn á borð til okkar hjá Símanum frá Sagafilm, ég þóttist vita að þetta yrði eitthvað einstakt sem varð raunin,“ segir Pálmi Guðmundsson, dagskrárstjóri Sjónvarps Símans.

Gríðarlegt áhorf á lokaþátt Helga Björns

Það er nokkuð ljóst að þjóðin lá límd yfir sjónvarpinu um páskana því auk þess að hámhorfa á Systrabönd var gríðarlegt áhorf á sérstakan aukaþátt af Það er komin Helgi. Þessir tveir síðustu þættir hjá Helga Björns og félögum eru þeir stærstu í áhorfi frá því þættirnir hófu göngu sína í mars á síðasta ári. 

Fyrsti þátturinn af Systraböndum var sýndur á páskadag í Sjónvarpi Símans og verður á dagskrá næstu sunnudagskvöld í opinni dagskrá.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant