Tilbúnir fyrir stúdíó þegar upp úr sauð

Endurkoma. Toymachine á tónleikum á Iceland Airwaves árið 2018 og …
Endurkoma. Toymachine á tónleikum á Iceland Airwaves árið 2018 og hafði ekki komið fram á henni frá árinu 1999 þegar hún var haldin fyrst.

Hljómsveitin Toymachine sendi í lok febrúar frá sér sína fyrstu breiðskífu, Royal Inbreed, í öðru formi en á vínil en vínillinn kom út öllu fyrr, í desember í fyrra. Er það nokkuð merkilegt í ljósi aldurs hljómsveitarinnar sem stofnuð var á Akureyri árið 1996 af þeim Jens Ólafssyni, sem syngur og raddar, Baldvini Z sem leikur á trommur, Atla Hergeirssyni bassaleikara og Kristjáni Örnólfssyni gítarleikara. Undirbúningur fyrir plötuna var langt kominn árið 2001 en þá sauð upp úr í sveitinni og Toymachine lagði upp laupana. Núna er platan loksins komin út og var tekin upp í ágústmánuði 2020 í Stúdíó hljóðverki í Reykjavík þar sem Einar Vilberg sá um upptökur og hljóðblöndun, auk þess að aðstoða sveitina við útsetningar að hluta. Hljómsveitin sér um útgáfu plötunnar í samstarfi við bandaríska fyrirtækið ONErpm sem sér m.a. um markaðs- og dreifingarmál.

Nokkur myndbönd munu fylgja útgáfunni á opinberri youtuberás Toymachine og Toymachine stefnir að því að halda útgáfutónleika síðar á árinu.

Ætluðu sér stóra hluti

Atli bassaleikari er spurður að því hvers vegna svo langur tími hafi liðið fram að útgáfu plötunnar, þ.e. tæp 20 ár frá því drög voru lögð að henni. „Þetta er nú þannig að við ætluðum okkur stóra hluti hér áður fyrr og þó ég segi sjálfur frá vorum við ein af björtustu vonunum í „undergroundinu“ hérna á Íslandi í den. Við fórum til útlanda og spiluðum og þefuðum af því að komast á samning, spiluðum á CBGB á Manhattan, sem er nú ansi eftirminnilegt gigg, og líka á fyrstu Airwaves-hátíðinni,“ segir Atli. Hljómsveitin hafi komið niðurbrotin frá New York þar sem ekki hafi gengið vel þar, mikið partístand og spilamennskan ekki góð. Í framhaldi, undirbúningi plötunnar, hafi sveitin sprungið þar sem liðsmenn hennar hafi verið fullsaddir hver á öðrum.

Afmæli. Toymachine lék í fertugsafmæli Atla í Bæjarbíói árið 2019 …
Afmæli. Toymachine lék í fertugsafmæli Atla í Bæjarbíói árið 2019 og var það gleðistund.

„Mörgum árum síðar ákveðum við sem fullorðnir menn og heimilisfeður – og einn okkar orðinn afi – að taka upp þráðinn og gera bara þessa plötu loksins. Við gerðum það,“ segir Atli. Hann átti sig þó á því að framboðið sé meira en eftirspurnin árið 2021 á plötu með Toymachine. Platan var aldrei tekin upp á sínum tíma, árið 2001, en sveitin var tilbúin í að fara í stúdíó þegar allt sprakk. Atli segir hljómsveitina hafa átt furðulétt með að taka þráðinn upp að nýju og leika lögin á plötunni.

Pabba- og afarokk

Toymachine var undir áhrifum frá vinsælum hljómsveitum þess tíma sem hún var virk og nefnir Atli sveitir á borð við Korn, System of a Down, Incubus og Deftones. „Við komum samt allir hver úr sínu horninu í tónlist, það er nefnilega svo merkilegt. En þessar hljómsveitir sem ég var að telja upp eru hljómsveitir sem við eigum sameiginlegar,“ segir Atli.

Liðsmenn Toymachine eru önnum kafnir við önnur störf í dag, Jenni afinn í hópnum og býr í Danmörku en allir eru þeir á fimmtugsaldri og Jenni elstur. Atli segir að tónlist Toymachine sé pabbarokk og blaðamaður bendir á að það sé líka afarokk, í ljósi þess að Jenni er orðinn afi.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 6. apríl. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant