Ungstirnin byrjuð saman aftur

Lily-Rose Depp, leikstjórinn David Michod og Timothee Chalamet.
Lily-Rose Depp, leikstjórinn David Michod og Timothee Chalamet. AFP

Ungstirn­in Timot­hée Chala­met og Lily-Rose Depp eru sögð byrjuð saman aftur. Parið hætti saman fyrir ári eftir eitt og hálft ár saman. Chalamat og Depp sáust saman í New York um síðustu helgi. 

Skötuhjúin sáust í skartgripa- og fatabúðinni Verameat að því fram kemur á vef ET. „Þau fóru inn saman og skoðuðu sig um. Timothée hefur komið inn í búðina nokkrum sinnum, bæði með Lily og einn,“ sagði sjónarvottur.

„Á meðan Lily skoðaði sig eitthvað um keypti hann leynigjöf fyrir hana og hljóp út,“ sagði sjónarvotturinn og bætti við að leikarinn hefði einnig keypt jakka fyrir sig og hálsmen. 

Chala­met, sem er 25 ára, hef­ur verið til­nefnd­ur til fjölda verðlauna, þar á meðal Óskarsverðlauna. Hin 21 árs gamla Lily-Rose Depp er hins veg­ar þekkt­ari fyr­ir for­eldra sína, en hún er dótt­ir Johnnys Depps og fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, Vanessu Para­dis.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson