Verður horft framhjá Villa Neto öðru sinni?

Leikarinn Vilhelm Neto vill kynna stigin
Leikarinn Vilhelm Neto vill kynna stigin Ljósmynd/Aðsend

Leikarinn og uppistandarinn Vilhelm Neto er ósáttur við að vera ekki tilnefndur af mbl.is sem líklegur stigakynnir Íslands í Eurovision laugardaginn 22. maí næstkomandi. Líkt og sjá má á meðfylgjandi tísti vonaðist hann til þess að traust vinátta sín við mbl.is dygði til þess að hann yrði tilnefndur.

Af­ hverju ertu ósátt­ur við að hafa ekki verið til­nefnd­ur af mbl.is sem stiga­kynn­ir?

„Hahah, það var mest í gríni sko! Smá callback á þegar ég var að reyna mitt besta til þess að fá að kynna stigin fyrir Ísland þegar við vorum að keppa í Portúgal árið 2018.“

Táraðist í eigin Eurovision-partíi

Vilhelm, eða Villi eins og hann er oft kallaður, er mikill Eurovision-aðdáandi. Hann fæddist í Portúgal, en hann á íslenska móður og portúgalskan föður. Bæði lönd tengjast honum því sterkum böndum. Þegar Salvador Sobral sigraði fyrir hönd Portúgals árið 2017 táraðist Villi af gleði í eigin Eurovision-partíi.

Í kjölfarið á sigri Portúgals hóf leikstjórinn Tryggvi Gunnarsson undirskriftasöfnunina „Fáum Vilhelm Neto til að kynna stig Íslands í Eurovision 2018!“ Á annað hundrað skrifuðu undir honum til stuðnings.

Var svo alveg horft fram hjá þér árið 2018?

„... ég skil það samt alveg, menn frekar nýir í bransanum, þetta er bara því ég er svo mikill Eurovision-aðdáandi, hefði verið stuð, en fékk síðan frábært, jafnvel betra tækifæri, þar sem ég fékk að taka mjög skemmtilegt viðtal við hann Salvador Sobral.“

Í Gísla Marteini í kvöld verður tilkynnt hver verður fyrir valinu sem stigakynnir Íslands. Hefur þú eitthvað heyrt frá Gísla Marteini?

„Get nú ekki sagt það, kannski fóru skilaboðin óvart í spam, verð að skoða þau aftur.“

Langar að taka þátt í Eurovision 2022

Villi segist þó hafa nóg fyrir stafni verði hann ekki fyrir valinu sem stigakynnir í Eurovision. „Ég er alltaf að bralla eitthvað með uppistandshópnum mínum VHS. Mörg verkefni í uppsiglingu þar, annars er ég að skipuleggja margt spennandi, stóra sketsa fram undan og hver veit, kannski smá tónlist.“

Villi Neto
Villi Neto Ljósmynd/Aðsend

Spurn­ing um að senda lag inn í for­keppni Eurovisi­on 2022?

„Hver veit, grínlögum hefur yfirleitt gengið vel. Kannski maður ræsi nokkra með sér.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson