Halla hlýtur Ísnálina 2021

Halla Kjartansdóttir þýðandi.
Halla Kjartansdóttir þýðandi.

Halla Kjartansdóttir hlýtur Ísnálina 2021 fyrir þýðingu sína Þerapistinn eftir Helene Flood sem Benedikt útgáfa gefur út. Verðlaunin voru afhent í Grófinni nú fyrir stundu. 

Í dómnefnd sátu Katrín María Víðisdóttir fyrir hönd Hins íslenska glæpafélags en hún var einnig formaður nefndarinnar, Ingibjörg Þórisdóttir fyrir hönd Þýðingaseturs HÍ og Kristín Vilhjálmsdóttir fyrir hönd Bandalags þýðenda og túlka.

Umsögn dómnefndar er erftirfarandi: „Þerapistinn fjallar um hvernig líf ungrar konu, Söru, umturnast þegar eiginmaður hennar, Thomas, hverfur á leið í veiðikofa með vinum sínum. Hún man eftir kveðjukossinum um morguninn þegar hann fór út um dyrnar. Enginn sér hann í nokkra daga, samt eru ummerki í húsinu eins og hann hafi komið heim. Er hann lífs eða liðinn? Á meðan hún reynir að takast á við hvarf eiginmannsins sinnir hún skjólstæðingum sínum sem eru flestir brotið ungt fólk, en er hún ekki á sama báti? Höfundur Þerapistans er Helene Flood og er sálfræðingur og starfar í Ósló og er þetta fyrsta bók hennar. Sagan er gríðarlega spennandi. Persónusköpunin er mjög sannfærandi og hefur lesandi á tilfinningunni að þetta gæti allt eins komið fyrir hvern sem er. Hvernig myndi maður bregðast við? Þýðandinn, Halla Kjartansdóttir, hefur náð að halda hversdagslegum blæ textans án þess að misstíga sig. Textinn verður aldrei flatur og hnýtur lesandinn ekki um óþarfa snúning á orðum né tilgerð. Halla gerir þetta feiknalega vel.“

Aðrir tilnefndir þýðendur voru: Ísak Harðarson fyrir þýðingu sína á Eldum björn eftir Mikael Niemi sem Mál og menning gefur út; Nanna B. Þórsdóttir fyrir þýðingu sína á Eplamaðurinn eftir Hanne Mette Hancock sem JPV gefur út; Nanna B. Þórsdóttir fyrir þýðingu sína á Blekkingarleikur eftir Kristinu Ohlsson sem JPV gefur út og Sigurður Karlsson, fyrir þýðingu sína á Snerting hins illa eftir Max Seeck sem JPV gefur út.

Ísnálin 2021 er veitt fyrir best þýddu glæpasöguna á árinu 2020. Að henni standa Bandalag þýðenda og túlka, Hið íslenska glæpafélag og Þýðingasetur Háskóla Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant