Ný Friends-stikla tryllir aðdáendur

Endurfundaþátturinn fer í loftið 26. maí á HBO Max.
Endurfundaþátturinn fer í loftið 26. maí á HBO Max. Skjáskot/YouTube

Streymisveitan HBO Max gaf í gær út fyrstu stikluna fyrir endurkomuþætti Friends. Stiklan hefur vakið mikla athygli en þegar þetta er skrifað hefur myndbandið verið spilað hátt í 6 milljón sinnum á YouTube.

Greint var frá því í síðustu viku að endurfundaþátturinn færi í loftið 27. maí næstkomandi og því aðdáendur orðnir gríðarlega spenntir. 

Friends voru sýndir á árunum 1994 til 2004 og nutu mikilla vinsælda. Snemma árs 2020 var það gefið út að endurkomuþáttur væri á dagskrá en vegna heimsfaraldursins frestaðist framleiðslan. En nú er loksins búið að taka upp þáttinn og aðeins vika í að hann fari í loftið. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson