Taka senn til málms

Guns N' Roses á Laugardalsvellinum sumarið 2018.
Guns N' Roses á Laugardalsvellinum sumarið 2018. mbl.is/Valgarður Gíslason

Það er að lifna yfir málmheimum, eins og öðrum heimum, eftir kórónuveirufaraldurinn. Tröllin skríða nú eitt af öðru úr fylgsnum sínum og í vikunni greindi tónlistartímaritið Rolling Stone frá því að Íslandsvinirnir í Guns N’ Roses myndu hefja frestaðan Ameríkutúr sinn í Hershey í Pennsylvaniu, eftir tæpa tvo mánuði, 31. júlí. Goðin stóðu síðast saman á sviði á Laugardalsvellinum fyrir þremur árum. Fyrirhugaðir eru 25 tónleikar fram í byrjun október og mun nýja bandið hans Wolfgangs Edwardssonar Van Halens hita upp, Mammoth WVH.

Annað risastórt tónleikaband, Metallica, mun slá í klárinn aðeins síðar, en fyrstu tvö gigg þess verða á Louder Than Life-hátíðinni í Louisville 24. og 26. september. Þar má einnig sjá Korn, Nine Inch Nails, Judas Priest, Anthrax og fleiri. Metallica verður einnig í Sacramento í október og Daytona Beach í nóvember. Nú er bara að drífa sig í bólusetningu og panta far.

James Hetfield klæjar ugglaust í fingurna.
James Hetfield klæjar ugglaust í fingurna. AFP
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson