Katrín Halldóra í Þjóðleikhúsið

Katrín Halldóra Sigurðardóttir stígur á svið í Þjóðleikhúsinu á næsta …
Katrín Halldóra Sigurðardóttir stígur á svið í Þjóðleikhúsinu á næsta leikári. Ljósmynd/Aðsend

Leik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir hefur samið við Þjóðleikhúsið og bætist nú í leikarahóp hússins. Katrín Halldóra starfaði áður í Borgarleikhúsinu þar sem hún sló í gegn sem Elly Vilhjálms í leikritinu um Elly. 

Áður en Elly kallaði lék Katrín Halldóra hjá Þjóðleikhúsinu, meðal annars í hinni geysivinsælu sýningu Í hjarta Hróa hattar. Auk leiklistarnáms stundaði Katrín Halldóra söngnám, bæði hér á landi og í Danmörku.

Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Björgvin Franz Gíslason sem Elly Vilhjálms …
Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Björgvin Franz Gíslason sem Elly Vilhjálms og Ragnar Bjarnason. Ljósmynd/Grímur Bjarnason

Katrín Halldóra, líkt og aðrir listamenn Þjóðleikhússins, er þegar komin á fullt í undirbúningi fyrir næsta leikár. Á meðal verkefna hennar verða meðal annars stórt hlutverk í söngleiknum Sem á himni sem Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstýrir en þar munu alls 25 leikarar taka þátt auk 12 manna hljómsveitar. Þá mun hún takast á við nýlegt verk eftir Caryl Churchill, Ást og upplýsingar, sem Una Þorleifsdóttir leikstýrir, í þýðingu Auðar Övu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant