Patrekur Jaime, Binni Glee og Bassi Maraj, stjörnur þáttaraðarinnar Æði, brugðu sér í betri fötin og léku nokkur atriði á Árbæjarsafni í tilefni þess að fram undan er þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir orðrétt: „17. júní er æði.“
Auðvelt er að segja að þeir félagar fari á kostum í myndskeiðinu hér að neðan. Sjón er sögu ríkari: