Leikkonan Lisa Banes er látin, 65 ára að aldri. Banes slasaðist alvarlega þegar ekið var á hana föstudaginn 4. júní í New York.
Umboðsmaður Banes staðfesti andlát hennar við ET á mánudag.
Banes, sem var hvað þekktust fyrir hlutverk sín í Gone Girl og Cocktail, varð fyrir vespu þar sem hún var á leið yfir Amsterdam Avenue á leið sinni í heimsókn í Julliard-háskólann, þar sem hún var sjálf nemandi.
Banes varð fyrir heilaskaða í árekstrinum og náði sér ekki. Enginn hefur verið handtekinn vegna atviksins.