Stranger Things-leikkonan Millie Bobby Brown er byrjuð með Jake Bongiovi, syni rokkarans Jons Bon Jovi. Brown er 17 ára og Bongiovi er 19 ára. Þau birtu sjálfumynd af sér á Instagram í byrjun mánaðarins og fóru sögusagnir af sambandi þeirra af stað.
Nú virðist sambandið vera staðfest. Brown og Bongiovi sáust leiðast í New York í síðustu viku og birtust myndir af þeim á vef Daily Mail. Leikkonan hefur gert það gott í leiklistinni síðan hún var 12 ára. Bongiovi stundar hins vegar nám í Syracuse-háskólanum.
Brown var í sambandi með tónlistarmanninum Jacob Sartorius árið 2018 og í fyrra var hún með ruðningskappanum Joseph Robinson.