Britney Spears biðst afsökunar

Britney Spears hefur beðið aðdáendur sína afsökunar á því að hafa sagt að allt hafi verið í himnalagi hjá henni síðustu tvö ár þegar henni var neitað um sjálfsögð mannréttindi. Hún birti færslu á Instagram í gærkvöldi þar sem hún tjáir sig um málið.

Á Instagram segir Spears að hún hafi ekki verið stolt af því hvernig henni leið og þess vegna hafi hún ekki viljað sýna það á samfélagsmiðlum: „Í fullri alvöru, hver vill ekki að instagramsíðan sín sýni sínar bestu hliðar,“ segir Britney Spears.

Britney Spears.
Britney Spears. AFP

„Mig langar að vekja athygli á þessu því ég vil ekki að fólk haldi að líf mitt hafi verið fullkomið því það hefur alls ekki verið það og ef þú lest eitthvað um mig í blöðunum í þessari viku þá sérðu augljóslega að það hefur ekki verið allt með felldu,“ segir Spears og biðst svo afsökunar á þessu við aðdáendur sína og segir: „Ég biðst afsökunar á því að hafa látið eins og það væri allt í lagi síðustu tvö ár.“

Britney Spears og kærastinn hennar Sam Asghari. Ljósmyndin var tekin …
Britney Spears og kærastinn hennar Sam Asghari. Ljósmyndin var tekin fyrir viku. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson