Stórstjörnuparið Jennifer Lopez og Ben Affleck virðist ákaflega sátt við lífið og tilveruna þessa dagana samkvæmt frétt People. Um þessar mundir slaka þau á í Hampton-hverfinu á Long Island í New York-ríki. Flugu þau þangað um helgina eftir að hafa eytt föstudeginum með börnunum sínum í Hollywood Universal Studios í Los Angeles.
Lopez og Affleck eru að leggja línurnar fyrir flutning Lopez frá Miami til Los Angeles þar sem Affleck er búsettur. Samkvæmt heimildum People taka þrettán ára tvíburar Lopez vel í flutninginn frá Flórída.
„Þau eru að ná að kynnast Affleck rólega og allt virðist ganga smurt. Það er augljóst að Lopez er alvara með þetta samband, hún hefur ekki verið svona hamingjusöm í langan tíma,“ er haft eftir heimildarmanninum.