Féll niður 22 hæðir og lést

Kristina Lisina er látin, 29 ára að aldri.
Kristina Lisina er látin, 29 ára að aldri.

Klámstjarnan og Onlyfans-stjarnan Kristina Lisina er látin, 29 ára að aldri. Lisina var betur þekkt undir nafninu Kris the Foxx í klámiðnaðinum. 

Lögreglan í Sankti Pétursborg í Rússlandi rannsakar nú andlát hennar en talið er að hún hafi fallið af 22. hæð byggingar í borginni. 

Miðillinn East2West greinir svo frá að lík hennar hafi fundist á gangstétt í borginni og í hendi hennar hafi verið smápeningur með áletruninni „Þú verður í hjarta mínu að eilífu“. Öryggismyndavélar virðast sýna Lisinu fara inn í bygginguna og einnig lík hennar liggja á jörðinni fyrir utan bygginguna. 

Kærasti hennar, Rustam M, greindi frá andláti hennar á samfélagsmiðlum auk þess sem hann bað aðdáendur hennar um fjárhagsaðstoð til þess að skipuleggja og greiða fyrir útför hennar. 

„Sæl öll! Þann 29. júní 2021, lést kærastan mín Kristina Lisina, betur þekkt sem Kris the Foxx. Útförin hennar mun kosta 70-80 þúsund rúbíur. Við óskum þess vegna eftir fjárhagsaðstoð til þess að greiða fyrir útförina,“ skrifaði Rustam M á samfélagsmiðla. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant