Ætla ekki að giftast fyrr en allir geta ferðast

Hoda Kotb og Joel Schiffman ætla ekki að gifta sig …
Hoda Kotb og Joel Schiffman ætla ekki að gifta sig fyrr en allir geta ferðast. Skjáskot/Instagram

Spjallþáttastjórnandinn Hoda Kotb og unnusti hennar Joel Schiffman ætla ekki að ganga í það heilaga fyrr en fjölskylda þeirra og vinir geta ferðast. Í þætti af The Today, sem hún stýrir ásamt Jennu Bush Hager, sagðist hún vera búin að fresta brúðkaupinu. 

Parið stefndi að því að gifta sig í nóvember á síðasta ári. „Við erum að reyna að tryggja að allir geti ferðast. Það er eiginlega það eina sem við viljum gera. Okkur langar að gifta okkur á stað sem er okkur virkilega kær og að okkar nánasta fólk geti verið með okkur,“ sagði Kotb. 

Ferðalög hafa ekki verið auðveld í heimsfaraldrinum og ekki allir sem treysta sér til að ferðast. 

Kotb segir þó Schiffman ekki hafa verið sammála til að byrja með og frekar viljað drífa sig en hitt. Schiffman bað Kotb að giftast sér í nóvember árið 2019 á ströndinni í Mexíkó. Hann hefur talað um að halda brúðkaupið á sama stað. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson