Sjöunda barn leikarans og tónlistarmannsins Nicks Cannons er komið í heiminn. Barnið átti hann með kærustu sinni Alyssu Scott en níu dögum áður eignaðist hann tvíburadrengi með fyrrverandi ástkonu sinni Abby De La Rosa.
Scott tilkynnti fæðingu barnsins á Instagram en litli drengurinn kom í heiminn 23. júní og hefur fengið nafnið Zen.
Fyrir á Cannon 10 ára tvíburana Moroccan og Monroe með fyrrverandi eiginkonu sinni Mariuh Carey, soninn Golden, fimm ára, og dótturina Powerful, fimm mánaða, með fyrirsætunni Brittany Bell.
Líkt og barnafjöldinn ber vitni um hefur Cannon haft í nægu að snúast undanfarna mánuði en hann eignaðist fjögur börn með þremur konum á sjö mánuðum.