Aldursmunurinn pirrar föðurinn

Lisa Rinna og Harry Hamlin hafa bæði sagt skoðun sína …
Lisa Rinna og Harry Hamlin hafa bæði sagt skoðun sína á sambandi dóttur sinnar. AFP

Harry Hamlin, faðir fyrirsætunnar Ameliu Hamlin, segir að það sem fari mest í taugarnar á honum varðandi samband dóttur hans við raunveruleikastjörnuna Scott Disick sé aldursmunurinn. 

Átján árum munar á hinni ungu Hamlin og Disick en foreldrar hennar hafa bæði rætt sambandið opinberlega í þáttunum The Real Housewives of Beverly Hills.

„Það sem hefur farið í taugarnar á mér lengst er þessi aldursmunur, sem er skrítið fyrir mig,“ sagði Harry Hamlin. Hann hefur verið kvæntur Lisu Rinnu í yfir 20 ár og eiga þau saman dæturnar Ameliu og Deliluh. Fyrir það var hann í sambandi með Ursulu Andress og eignuðust þau soninn Dimitri saman. 

„Ég var 14 árum yngri en hún þegar við áttum Dimitri. Svo ég get ekki kvartað er það?“

Rinna hefur líka tjáð sig um samband dótturinnar og segist hafa haft miklar áhyggjur þegar hún heyrði af sambandinu fyrst. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant