Verslunarmanna Helgi í beinu streymi

Helgi Björnsson verður um allt land á laugardagskvöldinu um verslunarmannahelgina.
Helgi Björnsson verður um allt land á laugardagskvöldinu um verslunarmannahelgina. Ljósmynd/Aðsend

Helgi Björnsson ætlar að heimsækja alla landsmenn, hvert á land sem er um verslunarmannahelgina en hann verður með kvöldtónleika í beinu streymi frá Hótel Borg á laugardagskvöldinu 31. júlí. Helgi verður ekki einn á ferð, Reiðmenn vindanna verða með honum og saman taka þeir á móti góðum gestum á Borginni.

„Við ætlum að eiga saman gæðastund og bjóða upp á vandaða tónlistardagskrá í takt við það sem við höfum verið að gera en við stráum fallegum sumar tónum yfir þetta,“ segir Helgi. „Mig langaði auðvitað að fara um allt land og hitta alla um Verslunarmannahelgina og þetta var í raun besta leiðin til þess.“

Þannig geta landsmenn verið heima með Helga á einfaldan og þægilegan hátt um Verslunarmannahelgina

Kvöldskemmtun hans og Reiðmannanna verður aðgengileg öllum, hvar sem þeir eru í heimunum. Streymið hefst klukkan 21:00 og hægt að tryggja sér aðgengi í gegnum Símann, Vodafone og Tix.is

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson