Þolandi kærir Minaj og eiginmann hennar

Petty og Minaj.
Petty og Minaj.

Rapparinn Nicki Minaj og eiginmaður hennar, Kenneth Petty, hafa verið lögsótt af konu sem hann var sakfelldur fyrir að hafa reynt að nauðga árið 1994. Konan, sem nú er 43 ára gömul, hefur kært hjónin og segir þau hafa áreitt sig og reynt að fá sig til að draga ásakanir sínar á hendur Petty til baka. 

BBC greinir frá.

Petty sat inni í fjögur og hálft ár eftir að hafa játað að hafa reynt að nauðga konunni, sem þá var táningur. Á síðasta ári var Petty handtekinn þar sem hann hafði ekki sinnt skyldu sinni til þess að skrá sig sem kynferðisafbrotamann.

Minaj hafi boðið 63 milljónir

Í kæru konunnar segir hún að Minaj hafi boðið sér hálfa milljón bandaríkjadala, eða sem nemur tæpum 63 milljónum íslenskra króna, í skiptum fyrir það að konan drægi ásakanir sínar til baka. Konan segist hafa afþakkað boðið. Í kjölfarið segir hún að hjónin hafi áreitt sig og fjölskyldu sína með símtölum og ósamþykktum heimsóknum.

Konan segist hafa verið óvinnufær síðan í maí í fyrra vegna alvarlegrar vanlíðanar sem hún telur að meint áreitni hjónanna hafi orsakað. Konan fer fram á skaðabætur en upphæð þeirra hefur ekki verið nefnd. Hún segist nú vera í felum. 

Hjónin hafa ekki brugðist við ásökununum opinberlega. Minaj og Petty hafa verið saman síðan 2018. Þau giftu sig sama ár og eiga 11 mánaða gamlan son.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant