Ekki ólétt og ekki búin í lýtaaðgerð

Britney Spears í sinni tærustu mynd, eins og hún orðar …
Britney Spears í sinni tærustu mynd, eins og hún orðar það sjálf. Samsett mynd

Aðdáendur tónlistarkonunnar Britney Spears hafa klórað sér í kollinum undanfarnar vikur og velt því fyrir sér hvaða skilaboð tónlistarkonan sé að senda þegar hún birtir af sér myndir berri að ofan. Spears hefur nú svarað þeim vangaveltum og segist hvorki vera ólétt né hafa farið nýlega í lýtaaðgerð. Ástæðan er einfaldlega að hún vill sjá sjálfa sig í sinni tærustu mynd. 

Hegðun Spears á samfélagsmiðlum hefur verið grandskoðuð í gegnum árin og engum blöðum um það að fletta að í sumar hefur hún slegið nýjan tón. Adáendur hennar hafa keppst við það undanfarin ár að lesa falin skilaboð út úr myndum hennar og slógu upp þeirri kenningu að Spears væri haldið gegn vilja sínum og að hún vildi ekki vera undir stjórn föður síns. 

Sú kenning reyndist á rökum reist og sýndi og sannaði Spears það þegar hún ávarpaði dómara í lögráðamáli sínu í júní. En hver eru skilaboðin með nektarmyndunum? Því velta aðdáendur hennar fyrir sér. 

„Nei krakkar. Ég fór ekki í brjóstaaðgerð á einni viku, og ég er ekki heldur ólétt. Ég er með brjóst á þessari mynd því ég borða mat. Áður en ég sýni ykkur fleiri myndir af líkama mínum vil ég að þið skiljið pælinguna á bak við myndirnar,“ skrifaði Spears. 

„Ég vil ekkert endilega sýna spékoppinn á rassinum, en mér líður eins og ég hafi orðið of meðvituð um sjálfa mig þegar ég var alltaf að koma fram, og það er ekki aðlaðandi,“ skrifaði Spears og bætti við að þegar hún væri nakin fyndist sér sem hún væri léttari eftir að hafa burðast með allan heiminn á herðunum. 

„Ég er kona. Falleg, tilfinningarík kona sem þarf að horfa á sjálfa sig í sínu tærasta formi. Nei ég er ekki að fara að birta myndir af mér berri að ofan út lífið, það yrði bara leiðinlegt, en það hjálpar klárlega þegar maður þarf að sjá hlutina skýrt,“ skrifaði tónlistarkonan. 

Spears vísaði að lokum í hreyfinguna #FreeBritney og sagði hana magnaða. „Það er miklu dýpri merking á bak við hreyfinguna en ykkur getur grunað. Aðdáendur mínir hafa alltaf verið svo magnaðir og ég elska ykkur öll.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant