Stella rannsakar glæpi manna í valdastöðum

Stella Blómkvist snýr nú aftur á skjáinn í glænýrri þáttaröð þar sem við fylgjum sem fyrr eftir andhetjunni, tálkvendinu og lögfræðingnum Stellu Blómkvist, sem fetar sínar eigin slóðir. Í starfi sínu sem lögfræðingur vílar hún ekki fyrir sér að beita brögðum til að fá sínu framgengt og tekur að sér snúin mál þar sem hún sér möguleika á að uppræta spillingu og glæpi hjá einstaklingum í valdastöðum.

Fyrsta þáttaröðin af Stellu Blómkvist fékk gríðarlega góðar viðtökur í Sjónvarpi Símans Premium haustið 2016 og var þá fyrsta leikna íslenska þáttaröðin til að vera aðgengileg í heilu lagi á streymisveitu á Íslandi.

Nú, tveimur árum eftir örlagaríku atburðina í Stjórnarráðinu úr fyrstu þáttaröðinni er Stella Blómkvist enn að harka sem lögfræðingur. Dagbjört er forsætisráðherra eftir afgerandi kosningasigur og við blasir gjörbreytt Ísland. Líkt og í fyrri þáttaröð þarf Stella að leysa þrjú ólík mál með aðstoð vina sinna Gunnu og Ragga en fyrr en varir sogast hún aftur inn í siðspillta hringiðu glæpa og stjórnmála, þar sem hún neyðist til að takast á við hættulegri og samviskulausari andstæðinga en hún hefur áður kynnst.

Þættirnir eru sex talsins og eru þeir byggðir á samnefndum glæpasögum eftir höfund sem skrifar undir dulnefninu Stella Blómkvist.

Sagafilm stendur að baki framleiðslunni en þáttunum er leikstýrt af Óskari Þór Axelssyni og Þóru Hilmarsdóttur. Heiða Rún Sigurðardóttir, einnig þekkt sem Heida Reed fer með hlutverk Stellu sem fyrr. Heiða er einna þekktust fyrir að leika eitt aðalhlutverkanna í bresku þáttunum Poldark og nú í haust sjáum við hana einnig í aðalhlutverki í glænýrri þáttaröð í Sjónvarpi Símans Premium sem kallast FBI International og er hluti af FBI þáttaröðunum sem hafa hlotið miklar vinsældir á Íslandi.

Í öðrum hlutverkum eru þau Kristín Þóra Haraldsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Edda Björgvinsdóttir, Saga Garðarsdóttir og Halldór Gylfason ásamt mörgum öðrum landsþekktum leikurum. Handritið er skrifað af Jóhanni Ævari Grímssyni, Snjólaugu Lúðvíksdóttur, Jónasi Margeiri Ingólfssyni og Dóru Jóhannsdóttur. Árni Filippusson og Þór Elísson skutu.  

Önnur þáttaröðin af Stellu Blómkvist kemur í heild sinni í Sjónvarp Símans Premium fimmtudaginn 30.september.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason