Bjarni syrgir hundinn Bó

Bjarni Benediktsson átti hundinn Bó.
Bjarni Benediktsson átti hundinn Bó. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra greinir frá því á persónulegri facebooksíðu sinni í dag að hundurinn hans Bó sé dauður. Bó var franskur bolabítur og glímdi við veikindi. Svo fór að Bjarni og fjölskylda kvöddu Bó í morgun. 

„Við fengum þennan mikla karakter til okkar árið 2010 sem lítinn hvolp. Hann hefur gætt heimilislífið miklu lífi og veitt okkur ómælda gleði,“ skrifaði Bjarni og birti mynd af Bó. „Á háum aldri eignaðist hann afkvæmi og Sushi litla er eitt þeirra, en Margrét og Ísak eru með hana hjá sér. Honum fór hins vegar að hraka á þessu ári. Það byrjaði með flogaköstum sem tóku að ágerast en það var stöðvað með lyfjum. En skref fyrir skref varð tilveran erfiðari fyrir blessaðan kallinn. Þetta mikla vöðvabúnt stóð eiginlega ekki undir sjálfum sér fyrir rest. Í morgun kvöddum við hann. Bó verður sárt saknað.“

Þóra Margrét Baldvinsdóttir, eiginkona Bjarna, með hundinn Bó.
Þóra Margrét Baldvinsdóttir, eiginkona Bjarna, með hundinn Bó. Árni Sæberg

Bjarni birti síðast myndskeið af Bó á Instagram fyrir helgi þar sem hann og Bó hituðu upp fyrir kappræður í sjónvarpinu. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson