Kyndir undir orðróm um samband

Tom Holland og Zendaya.
Tom Holland og Zendaya. Samsett mynd

Leikarinn Tom Holland birti mynd af mótleikkonu sinni Zendayu á Instagram nýverið. Þykir myndbirtingin ýta undir þær sögusagnir að þau séu saman. Undir myndina skrifaði hann Dune, og vísaði þar í nýjustu kvikmynd leikkonunnar. Hann bætti einnig lyndistákni af broskarli með hjörtu í augunum. 

Holland og Zendaya léku saman í kvikmyndinni Spider-Man: Far From Home árið 2019 og í framhaldsmynd af kvikmyndinni sem kemur út á þessu ári. Í sumar sáust þau kyssast inni í bíl en hvorugt hefur staðfest nokkuð um mögulegt ástarsamband þeirra. 

Árið 2017 voru einnig sögusagnir um að þau væru í sambandi. Þá sagði heimildamaður People að þau væru saman en að þau gerðu sitt allra besta til að fara leynt með það. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson