Hanna María og Ólafur Örn heiðursfélagar

Heiðursfélagarnir ásamt Brynhildi Guðjónsdóttur leikhússtjóra og Eggerti Benedikt Guðmundssyni, formanni …
Heiðursfélagarnir ásamt Brynhildi Guðjónsdóttur leikhússtjóra og Eggerti Benedikt Guðmundssyni, formanni Leikfélags Reykjavíkur. Ljósmynd/Aðsend

Hanna María Karlsdóttir og Ólafur Örn Thoroddsen voru gerðir að heiðursfélögum Leikfélags Reykjavíkur á aðalfundi þess í gær.

Fram kemur í tilkynningu að þau hafi verið mikilvægir þátttakendur og áhrifavaldar í sögu leikfélagsins.

Ferill Hönnu Maríu hjá Leikfélagi Reykjavíkur spannar hátt í fjóra áratugi og á þeim tíma lék hún yfir 75 hlutverk, meðal annars í Jóa, Djöflaeyjunni, Þrúgum reiðinnar, Dómínó, Mávahlátri, Öndvegiskonum, auk þess sem hún leikstýrði einleiknum Sigrúnu Ástrós sem gekk í þrjú leikár á Litla sviði Borgarleikhússins.

Hanna María hlaut Grímuna sem besta leikkona í aðalhlutverki árið 2005 fyrir hlutverk sitt í Héra Hérasyni og tilnefningu fyrir hlutverk sitt í Degi vonar 2007.

Ólafur Örn var um langt skeið einn af hornsteinum Borgarleikhússins og einn helsti hljóðhönnuður Leikfélags Reykjavíkur, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Hann réðst til Leikfélags Reykjavíkur við opnun Borgarleikhússins árið 1989. Fyrsta verkefni hans þar var hljóðhönnun í verki Ólafs Hauks Símonarsonar, Kjöt, í janúar 1990 en síðan þá hefur hann unnið við fjölda sýninga hússins. Má þar nefna Einhver í dyrunum, Öndvegiskonur, Boðorðin 9, Híbýli vindanna, Woyzeck, Ófagra veröld, Amadeus, Dauðasyndirnar, Harry og Heimir, Nei ráðherra, Jesú litli og Hús Bernhörðu Alba. Fyrir þá sýningu var Ólafur tilnefndur til Grímunnar fyrir hljóðhönnun. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson