Kardashian og Davidson á stefnumóti

Kim Kardashian West og Pete Davidson snæddu saman á veitingastað …
Kim Kardashian West og Pete Davidson snæddu saman á veitingastað í New York í gær. Samsett mynd

Athafnakonan Kim Kardashian og grínistinn PEte Davidson fóru á stefnumót í New York í gærkvöldi. Er þetta annað kvöldið í röð sem þetta ólíklega par fór á stefnumót. Heimildir Page Six herma að Kardashian og Davidson hafi farið á staðinn Zero Bond á Manhattan.

Kardashian og Davidson komu hvort í sínu lagi á staðinn en þau eru þó sögð hafa snætt kvöldverð saman. Mögulegt ástarsamband, eða vinasamband, milli þeirra tveggja þykir nokkuð standa í stúf. Kardashian er 41 árs, nýfráskilin fjögurra barna móðir en Davidson er 27 ára piparsveinn. 

Þau kynntust við tökur á þáttunum Saturday Night Live, sem Davidson er í og Kardashian var gestastjórnandi í. 

Þau sáust fyrst saman á föstudag í síðustu viku og sáust þau haldast í hendur í rússíbana í Buena Park í Kaliforníu. Þá fóru þau einnig á stefnumót á þriðjudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson