Kynlífssenurnar algjör ringulreið

Gemma Whelan segir kynlífssenurnar í Game of Thrones hafa verið …
Gemma Whelan segir kynlífssenurnar í Game of Thrones hafa verið skrautlegar. AFP

Leikkonan Gemma Whelan, sem fór með hlutverk Yöru Greyjoy í þáttunum Game of Thrones, segir að algjör ringulreið hafi myndast þegar sumar af kynlífssenum þáttanna voru teknar upp. 

Hún segir að öll hafi verið mjög dugleg að fá samþykki hvert hjá öðru fyrir hinum ýmsu snertingum og kossum, en þau þurftu oft að leika af fingrum fram eftir að tökurnar fóru af stað. 

„Þau sögðu „þegar við köllum „action“ hefjist þið bara handa“ og það gat oft myndast mikil ringulreið. En á milli leikaranna var alltaf samþykki og fólk athugaði hvað með annað,“ sagði Whelan í viðtali við The Guardian. 

„Það voru tökur í vændishúsi með konu, og hún var mjög berskjölduð, þannig að við töluðum saman um hvernig tökuvélin ætti að snúa og hvað henni liði vel með. Leikstjórinn sagði svo: „Smá bit í brjóst, rassskelltu hana svo og haltu áfram,“ en við töluðum alltaf saman okkar á milli um hvað við værum að fara gera,“ sagði Whelan.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson