Hefði átt að stöðva tónleikana

Átta létust á tónleikum Travis Scott.
Átta létust á tónleikum Travis Scott. AFP

Rapparinn Travis Scott og aðrir hefðu átt að stöðva tónleikana á Astroworld-tónlistarhátíðinni um helgina í Houston í Bandaríkjunum. Þetta er mat slökkviliðsstjóra í Houston. Átta lét­ust og fjöl­marg­ir særðust eft­ir að hafa troðist und­ir í öngþveiti við svið tón­leik­anna þar sem Scott stóð í miðjum flutn­ingi.

„Algjörlega. Við berum öll ábyrgð sjáðu til,“ sagði slökkviliðsstjóri Samuel Peña í viðtali við NBC þegar hann var spurður hvort að Scott hefði átt að binda enda á flutning sinn. „Allir á hátíðinni báru ábyrgð sem byrjaði hjá listamanninum og svo niður.“

Peña sagði að reynt hefði verið að ná sambandi við öryggisverði Scotts til þess að segja þeim að eitthvað væri að. „Á einum tímapunkti var sjúkrabíll að reyna að komast í gegnum þvöguna. Og hann hefur það, listamaðurinn hefur stjórn á áhorfendum,“ sagði slökkviliðsstjóri og sagði lítið mál fyrir listamann að gera hlé á tónleikum. 

Peña sagði rannsóknina vera í fullum gangi en nú þegar hefur lög­manns­stofa í Texasríki í Banda­ríkj­un­um höfðað einka­mál á hend­ur tón­list­ar­mönn­un­um Tra­vis Scott og Dra­ke fyr­ir að hvetja til óreiðu og upp­lausn­ar á tón­leik­um á Astroworld-tón­leika­hátíðinni. Scott hefur lýst því yfir að hann sé miður sín yfir því sem gerðist á tónleikum hans. 

Kerti og blóm fyrir utan staðinn þar sem Astroworld-tónlistarhátíðin fór …
Kerti og blóm fyrir utan staðinn þar sem Astroworld-tónlistarhátíðin fór fram um helgina. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson