Prinsessan frá störfum í nokkrar vikur

Charlene prinsessa mun vera frá störfum í nokkrar vikur.
Charlene prinsessa mun vera frá störfum í nokkrar vikur. AFP

Charlene prinsessa af Mónakó mun verða frá opinberum störfum í nokkrar vikur. Þá mun hún ekki taka þátt í fagnaðarhöldum í höllinni á föstudag, þjóðhátíðardag Mónakó. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá höllinni. 

Í tilkynningunni segir að prinsessan þurfi á mikilli hvíld að halda og þyrfti að draga sig í hlé í nokkrar vikur. „Hún hefur glímt við heilsubresti undanfarna mánuði, hún er nú að ná sér eftir veikindin og mun halda því áfram næstu vikurnar,“ segir í tilkynningunni. 

Charlene prinsessa er eiginkona Alberts prins en þau gengu í það heilaga árið 2011. Hún hefur undanfarna mánuði dvalið í heimalandi sínu Suður-Afríku. Hún kom aftur til Mónakó í síðustu viku. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler