Foreldrar leikkonu fundust látnir

Alicia Witt syrgir nú fráfall foreldra sinna sem fundust látin …
Alicia Witt syrgir nú fráfall foreldra sinna sem fundust látin á hemili sínu í Worcester í Massachusettsríki í Bandaríkjunum. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Alicia Witt syrgir nú andlát foreldra sinna Roberts og Diönu Witt sem fundust látin á heimili sínu í Worcester í Massachusettsríki í Bandaríkjunum á mánudag. Frá þessu greinir staðarmiðilinn Worcester Telegram en leikkonan er fædd og uppalin í bænum. 

Alicia er hvað þekktust fyrir að fara með hlutverk í þáttunum Walking Dead auk kvikmyndarinnar Dune frá árinu 1984. 

Að því er fram kemur í tilkynningu frá leikkonunni til fjölmiðla hafði hún samband við ættmenni sitt sem býr í grennd við foreldra hennar. Hún bað um að láta athuga með foreldra sína þar sem hún hafði ekki heyrt frá þeim í nokkra daga. 

Lögreglu var gert viðvart skömmu seinna og kölluð til á heimilið þar sem þau fundust látin. Lögregla rannsakar nú andlát Witt-hjónanna en ekkert bendir til að andlát þeirra hafi borið að með saknæmum hætti. Þá hafa loftgæði í húsinu einnig verið könnuð og ekkert bendir til gasleka í húsinu. 

Robert Witt var 87 ára en Diane Witt 75 ára að aldri.

Í umfjöllun Worcester Telegram kemur fram að nágrannar Witt-hjónanna hafi haft áhyggjur af þeim í nokkurn tíma. Þau hafi sjaldan sést fyrir utan veggi heimilisins og þau hafi verið veik í nokkurn tíma. Þá hafi nágranni boðið þeim aðstoð við viðhald á húsinu en þau afþakkað kurteislega. 

Vonast er til þess að krufning muni leiða dánarorsök hjónanna í ljós.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson