Illa gengur að leggja hald á síma Baldwins

Alec Baldwin.
Alec Baldwin. AFP

Leikarinn Alec Baldwin hefur varist ásökunum um að hann sé ekki samvinnuþýður við rannsókn á voðaskotinu sem varð kvikmyndatökukonunni Halynu Hutchins að bana en Baldwin hélt á byssunni þegar skotið hljóp úr henni. BBC greinir frá.

Rann­sókn­ar­lög­reglu í Nýju-Mexí­kó í Banda­ríkj­un­um var í desember gefin heim­ild til skoða síma leik­ar­ans en þrátt fyrir tilraunir lögreglunnar til að leggja hald á símann hafa þær ekki enn borið árangur.

Að sögn Baldwins tekur það tíma að tilgreina nákvæmlega hvers lögreglan þarfnast úr símanum. Þá sagði hann í myndskeiði á Instagram að það væri lygi að hann hefði vísvitandi reynt að komast undan rannsókninni.

„Þeir geta ekki bara farið í gegnum símann þinn og tekið myndirnar þínar, eða ástarbréfin þín til konu þinnar, eða hvað sem er,“ sagði Baldwin. „En auðvitað ætlum við að fara 1.000% eftir þessu öllu,“ bætti hann við.

Lögreglumenn hafa óskað eftir frekari aðstoð

Á föstudag óskuðu lögreglumenn í Nýju-Mexíkó eftir aðstoð frá yfirvöldum í New York við að leggja hald á símann.

Mary Carmack-Altwies héraðssaksóknari, sem hefur haft umsjón með rannsókninni, sagði að skrifstofa hennar ynni með sýslumanninum í New York og lögfræðingum Baldwins „til að ná í efni úr síma Baldwins sem tengist Rust-rannsókninni.“

Í leitarheimild sem veitt var 16. desember sögðust rannsakendur vera að leita að skilaboðum, myndum, myndböndum eða símtölum sem tengdust kvikmyndagerðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson