Fyrirspurnum um miða rigndi inn eftir sigurinn

Margir Íslendingar hafa hug á að drífa sig út til …
Margir Íslendingar hafa hug á að drífa sig út til Ungverjalands til að styðja við bakið á landsliðinu sem tryggði sig áfram í milliriðil Evrópumeistaramótsins í handbolta í gærkvöldi. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Betur skýrist í dag hversu marga miða Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, fær á leiki Íslands á Evrópumeistaramótinu í handbolta sem fer nú fram í Búdapest í Ungverjalandi. Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, er staddur úti í Ungverjalandi og segir sambandið hafa fengið töluverðan fjölda fyrirspurna um miða á leiki liðsins. Það er því ljóst að töluverður fjöldi mun leggja leið sína austur til Ungverjalands á næstu dögum.

Ísland tryggði sér farmiða inn í milliriðil á mótinu í gærkvöldi með sigri á liði Ungverja. Nú eru fjórir leikir framundan næstu vikuna en sá fyrsti fer fram annað kvöld gegn liði Danmerkur.

„Þetta er bara ánægjulegt og vonandi getum við sinnt öllum sem vilja koma á leikina,“ segir Róbert. 

Miðarnir á leikina fara í sölu þegar liggur fyrir hversu marga miða sambandið fær. Heimsferðir hafa nú þegar tryggt sér 186 miða á leikinn gegn Dönum á morgun og aðrar ferðaskrifstofur eru einnig að skipuleggja ferðir út. 

„Við erum gríðarlega ánægð með frammistöðu okkar manna inni á vellinum og einnig áhorfenda. Það hefur verið frábær stemning í höllinni undanfarna daga,“ segir Róbert sem er ánægður með framlengda dvöl liðsins í Ungverjalandi og hlakkar til leikjanna framundan.

Róbert Geir Gíslason (t.v.) framkvæmdastjóri HSÍ.
Róbert Geir Gíslason (t.v.) framkvæmdastjóri HSÍ. Kristinn Magnúsosn,Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant