Varð fyrir áfalli og hætti með Ronaldo

Georgina Rodriguez og Cristiano Ronaldo.
Georgina Rodriguez og Cristiano Ronaldo. AFP

Knattspyrnukappinn Cristiano Ronaldo og kærasta hans Georgina Rodriguez hættu að vera saman á tímabili. Ástæðan var sú að faðir Rodriguez var veikur. Rodriguez segir frá þessu í nýjum Netflix-þáttum sem fjalla um líf hennar, I Am Georgina. 

Rodriguez starfaði í verslun Gucci í Madríd þegar hún kynntist Ronaldo. Samband þeirra tók nokkurn tíma að þróast. „Þetta gerðist ekki hratt. Þetta tók kannski nokkra mánuði af því við hættum að hittast,“ sagði leikmaðurinn um sambandið að því fram kemur á vef Daily Mail.

Parið hittist á nokkrum viðburðum en svo varð Rodriguez fjarlæg, það gerðist í kjölfar þess að faðir hennar fékk heilablóðfall. „Cristiano var að spila marga leiki, þetta með föður minn gerðist síðan. Ég var svolítið fjarlæg þá, ég var sorgmædd.. en einn daginn rákumst við á hvort annað á öðrum viðburði og hann bauð mér í kvöldmat og ég hugsaði loksins nú kemur tækifærið mitt.“

Faðir Rodriguez fékk heilablóðfall 2016 en lést ekki fyrr en þremur árum síðar. Feðginin áttu flókið samband og Rodriguez var alin upp af frænda sínum. Faðir hennar sem var fæddur í Argentínu var hins vegar í fangelsi í tíu ár vegna fíkniefnabrota. 

Cristiano Ronaldo, Cristiano Ronaldo yngri og Georginu Rodriguez.
Cristiano Ronaldo, Cristiano Ronaldo yngri og Georginu Rodriguez. AFP

„Fyrir fimm árum breyttist líf mitt. Vegna ástarinnar er lífið mitt núna draumur. Ekkert í lífinu hefur verið auðvelt. Ég veit hvernig er að eiga ekkert og hvernig er að eiga allt.“

Rodriguez og Ronaldo eignuðust dóttur árið 2017 og eiga nú von á tvíburum. Ronaldo á einnig son og tvíbura sem hann eignaðist með hjálp staðgöngumæðra og er Rodriguez stjúpmamma þeirra. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant