Á fjórða skilnaðarlögfræðingnum

Kanye West er kominn á fjórða skilnaðarlögfræðinginn.
Kanye West er kominn á fjórða skilnaðarlögfræðinginn. AFP

Fjöllistamaðurinn Kanye West er búinn að reka skilnaðarlögfræðinginn Chris Melcher. Er þetta þriðji lögfræðingurinn sem West rekur síðan raunveruleikastjarnan Kim Kardashian sótti um skilnað við hann. 

Samkvæmt heimildum TMZ lét West Melcher fara vegna erfiðra og lítilla samskipta. Þá er haft eftir heimildarmanni að West hafi átt erfitt með að gera upp hug sinn hvort hann vildi ná sátt í málinu, eða hvort hann vildi streitast á móti. 

Lögfræðingar Kardashian og West eiga að hittast í dag, miðvikudag, og mun lögfræðingurinn Samantha Spector fara með mál West. Hennar síðasti skjólstæðingur var Nicole Young í skilnaði hennar við tónlistarmanninn Dr. Dre. 

West hefur ekki verið samvinnuþýður í skilnaðinum og sett sig upp á móti mörgum af þeim kröfum sem Kardashian hefur lagt fram. 

Meira en ár er síðan Kardashian sótti um skilnað við West. Þau eiga saman fjögur börn og fjölda eigna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson