Lá á gólfinu og grét eftir skilnaðinn

Bill og Melinda Gates voru gift í 27 ár.
Bill og Melinda Gates voru gift í 27 ár. AFP

Melinda Gates, fyrrverandi eiginkona Bill Gates segir hjónaband þeirra hafi verið mjög óheilbrigt en þau voru gift í 27 ár. Hún sagði frá raunum sínum í spjallþætti Gayle King hjá CBS.

„Það verður að vera ljóst að ég grét mikið í marga daga, ég meina, það voru dagar þar sem ég lá á gólfinu og hugsaði hvernig gæti þetta verið svona? Hvernig kemst ég upp? Hvernig held ég áfram?“ sagði Gates í viðtalinu.

Gates lýsti sorgarferlinu sem tók við. „Maður er að syrgja eitthvað sem maður hélt að maður ætti út lífið. Þetta er mjög sársaukafullt.“

King spurði Gates út í meint framhjáhald Bill Gates fyrir tuttugu árum. 

„Ég trúi á fyrirgefningu, ég hélt að við hefðum unnið okkur í gegnum þetta. Það var ekki einhver ein stund eða einn ákveðinn atburður sem skipti sköpun. Það bara kom sá tími þar sem það var nóg af hlutum þarna sem ekki voru heilbrigðir. Ég gat bara ekki treyst því sem við áttum saman.“

Gates sem er 57 ára segist vera að byggja sig upp á nýjan leik. 

„Það eru kaflaskipti hjá mér. Ég er nú virkilega spennt fyrir því sem er framundan.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson