Segir kaffidrykkju kveikjuna að kvíða

Ireland Baldwin.
Ireland Baldwin. Skjáskot/Instagram

Fyrirsætan Ireland Baldwin, dóttir leikarans Alec Baldwins, hefur verið opinská um geðheilsu sína undanfarið. Um liðna helgi birti hún myndir af sér þar sem hún sat á baðherbergisgólfinu heima hjá sér og glímdi við óhjákvæmilegt kvíðakast.

„Í morgun fékk ég mér einn kaffibolla á fastandi maga sem skyndilega breyttist í kvíðakast,“ skrifaði við Baldwin við myndafærsluna þar sem hún sat á gólfinu og reyndi að róa sjálfa sig niður. 

„Ég sit venjulega hérna eða ligg í fósturstellingu þar til ég get ekki grátið eða kastað meira upp,“ útskýrði hún. „Kaffi á það til að erta vélindað og kveikja á bakflæðinu sem leiðir til mikils kvíða hjá mér,“ sagði Baldwin. „Ef þú ert kvíðasjúklingur eins og ég þá er kaffi ekki vinur þinn.“

Baldwin finnst mikilvægt að koma hreint til dyranna og upplýsa aðdáendur sína um þá andlegu baráttu sem hún er að eiga við. Árið 2015 upplifði hún sitt fyrsta ofsakvíðakast og hefur hún verið opinská um þessi málefni síðan þá. 

Mikið hefur gengið á hjá Baldwin-fjölskyldunni síðustu mánuði eftir að faðir hennar, Alec Baldwin, skaut af voðaskoti á meðan á kvikmyndatökum stóð, með þeim afleiðingum að tökumaður á setti lést af sárum sínum. Alec Baldwin hefur alltaf haldið því fram að um slys hafi verið að ræða en fjölskyldan öll varð fyrir miklu tilfinningalegu áfalli í kjölfar þessa.

„Ég elska þig. Ó, elskan. Ekkert koffín fyrir okkur. Þú kemst yfir þetta. Kældu á þér bringuna ef þú getur,“ skrifaði Alec Baldwin við myndafærslu dóttur sinnar og reyndi að hughreysta hana. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant