Trúlofun í kortunum hjá frægasta pari í heimi

Ben Affleck og Jennifer Lopez byrjuðu aftur saman í fyrra.
Ben Affleck og Jennifer Lopez byrjuðu aftur saman í fyrra. AFP/Filippo MONTEFORTE

Stjörnuparið Ben Affleck og Jennifer Lopez ætla að verja ævinni saman. Þau eru nú sögð ræða trúlofun og telja sig geta lært af mistökunum sem þau gerðu þegar samband þeirra fór í vaskinn í byrjun aldarinnar. 

„Ben og Jen geta ekki beðið eftir því að verja því sem eftir er saman og vita að það eru örlög þeirra,“ segir heimildarmaður ET. „Trúlofun er í kortunum og þau ræða það stöðugt.“

Affleck sem er 49 ára og Lopez sem er 51 árs byrjuðu fyrst saman í fyrra. Þau byrjuðu áður saman tæpum tveimur áratugum fyrr en þau slitu trúlofun sinni árið 2004. 

„Þau tala saman um það sem gekk ekki upp áður fyrr og nota þá reynslu til þess að styrkja sambandið,“ sagði heimildarmaðurinn meðal annars og sagði þau ætla sér eiga í heilbrigðu sambandi. 

Ben Affleck og Jennifer Lopez íhuga að gifta sig.
Ben Affleck og Jennifer Lopez íhuga að gifta sig. AFP/VALERIE MACON

Það sem gerir samband stjarnanna meðal annars gott er stuðningurinn sem þau veita hvort öðru. Affleck er sagður vera aðdáandi Lopez númer eitt og elskar að ræða við hana um verkefnin hennar. „Hún er líka stuðningsrík en Ben getur ekki hætt að segja öllum hversu gáfuð og dugleg hún er.“

Til þess að toppa allt er fyrrverandi eiginkona Afflecks og barnsmóðir hans, leikkonan Jennifer Garner, búin að gefa grænt ljós. „Jen Garner og Ben kemur vel saman. Hún sýnir sambandi Jen og Ben skilning og styður þau,“ segir heimildarmaðurinn og segir að Garner vilji bara það besta fyrir börnin þeirra þrjú. 

Ben Affleck og Jennifer eru dugleg að vinna í sambandinu.
Ben Affleck og Jennifer eru dugleg að vinna í sambandinu. AFP/Momodu Mansaray
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson