Ætlar að kvænast æskuástinni en svo fer allt í vitleysu

Brúðkaupið mitt er framhald af hinni geysivinsælu þáttaröð Jarðarförin mín sem sló á sínum tíma áhorfsmet í Sjónvarpi Símans Premium. Í þáttaröðinni er fylgst með Benedikt sem var dauðvona í fyrri seríunni en er nú sprelllifandi 18 mánuðum síðar.

Honum gengur vel að jafna sig á aðgerðinni lífshættulegu og stefnir á að giftast æskuástinni sinni, séra Ólöfu. Þegar gamla parið ætlar að segja allri fjölskyldunni góðu fréttirnar stelur Sigríður, fyrrverandi kona Benedikts, þrumunni. Sigríður tilkynnir að hún ætli að giftast Luis, argentínska ástmanni sínum. Þau eru með sömu dagsetningu í huga og Benedikt og Ólöf höfðu ákveðið að ganga í það heilaga. Til að bæta gráu ofan á svart byrjar heilaæxlið aftur að láta á sér kræla og tími Benedikts er að renna út. Hann fær sig samt ekki til að segja neinum slæmu fréttirnar en stingur upp á því að sameina brúðkaupin, svo hann nái að minnsta kosti að giftast áður en hann deyr.

Hugmynd og handrit er eftir Heklu Elísabetu Aðalsteinsdóttur, Jón Gunnar Geirdal og Kristófer Dignus. Leikstjóri er Kristófer Dignus en hann leikstýrði einnig Jarðarförin mín. Laddi fer sem fyrr með hlutverk Benedikts, Ragnheiður K. Steindórsdóttir fer með hlutverk séra Ólafar, Ævar Þór Benediktsson og Birna Rún Eiríksdóttir fara með hlutverk unga parsins og Harpa Arnardóttir og Mario Glodek fara með hlutverk Sigríðar og Luis. Ungu stúlkurnar Sísí og Jasmín eru leiknar af Birtu Hall og Björk Friðriksdóttur.

Glassriver framleiðir þættina fyrir Símann en öll þáttaröðin kemur í Sjónvarp Símans Premium um páskana.

mbl.is

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það ríður á miklu að þú missir ekki sjálfstjórnina, þótt þér líki ekki allt, sem upp á kemur. Láttu aðra um að finna lausn á sínum málum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Lilja Sigurðardóttir
3
Lucinda Riley
5
Ragnheiður Gestsdóttir

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það ríður á miklu að þú missir ekki sjálfstjórnina, þótt þér líki ekki allt, sem upp á kemur. Láttu aðra um að finna lausn á sínum málum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Lilja Sigurðardóttir
3
Lucinda Riley
5
Ragnheiður Gestsdóttir