Pinkett Smith er ekki reið út í eiginmann sinn

Will Smith, Jada Pinkett Smith og Chris Rock. Jada Pinkett …
Will Smith, Jada Pinkett Smith og Chris Rock. Jada Pinkett Smith er ekki reið út í eiginmann sinn fyrir að slá Chris Rock á Óskarnum. AFP

Leikkonan Jada Pinkett Smith er ekki reið út í eiginmann sinn, leikarann Will Smith. Hún er þó ekki ánægð með atvikið á Óskarnum í síðustu viku. Leikarinn hljóp upp á svið og sló grínistann Chris Rock á Óskarsverðlaunahátíðinni eftir að hann sagði ósmekklegan brandara um Pinkett Smith. 

„Þetta gerðist í hita leiksins og hann brást of harkalega við. Hann veit það, hún veit það. Þau eru sammála um að hann brást of harkalega við,“ segir heimildarmaður Us Weekly

Pinkett Smith hefði viljað að eiginmaður sinn hefði sleppt því að bregðast við með líkamlegu ofbeldi. 

Will Smith og Jada Pinkett Smith áður en atvikið á …
Will Smith og Jada Pinkett Smith áður en atvikið á Óskarnum átti sér stað. AFP/ VALERIE MACON

Leikarinn hefur verið gagnrýndur fyrir hegðun sína og sumir vinir hans skammast sín. Nánustu vinir hans hafa verið til staðar fyrir hann að því fram kemur á vef ET og senda honum skilaboð. Hann er talinn þurfa að vinna í sér. „Þeim finnst hann þurfa að taka sér frí frá leiklistinni, fara í meðferð og vinna í vandamálum sínum.“

Jada Pinkett Smith hafa það gott miðað við allt. „Fjölskyldan er að vinna sig í gegnum þetta allt,“ segir annar heimildarmaður ET. „Þau eru sterk fjölskylda og þau styðja Will 100 prósent.“

Will Smith sló Chris Rock.
Will Smith sló Chris Rock. AFP

Kveikj­an að uppþot­inu var brand­ari Rock en hann vísaði til eig­in­konu Smiths, leik­kon­unn­ar Jödu Pin­kett Smith, sem G.I. Jane, sem er per­sóna í sam­nefndri kvik­mynd frá 1997. Leik­kon­an Demi Moore fer þar með hlut­verk G. I. Jane en hún er sköll­ótt.

Pin­kett Smith er einnig sköll­ótt um þess­ar mund­ir. Leik­kon­an hef­ur glímt við sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­inn al­opecia sem veld­ur meðal ann­ars skalla­blett­um. Ákvað hún því að krúnuraka sig og hef­ur borið höfuðið hátt á rauða dregl­in­um síðan.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson