„Erum við ekki aðeins of gamlar til að þykjast vera óspjallaðar“

Brúðkaupið mitt er framhald af hinni geysivinsælu þáttaröð Jarðarförin mín. Í þáttaröðinni er fylgst með Benedikt og litríku fjölskyldu hans, nú 18 mánuðum seinna.

Benedikt gengur vel að jafna sig á aðgerðinni lífshættulegu og stefnir á að giftast æskuástinni sinni, séra Ólöfu. Þegar gamla parið ætlar að segja allri fjölskyldunni góðu fréttirnar stelur Sigríður, fyrrverandi kona Benedikts, þrumunni. Sigríður tilkynnir að hún ætli að giftast Luis, argentíska ástmanni sínum. Þau eru með sömu dagsetningu í huga og Benedikt og Ólöf höfðu ákveðið að ganga í það heilaga. Til að bæta gráu ofan á svart byrjar heilaæxlið aftur að láta á sér kræla og tími Benedikts er að renna út. Hann fær sig samt ekki til að segja neinum slæmu fréttirnar en stingur upp á því að sameina brúðkaupin, svo hann nái að minnsta kosti að giftast áður en hann deyr. 

Svo fer allt á hliðina þegar Sigríður, fyrrverandi eiginkona Benedikts, mætir heim til Ólafar, verðandi eiginkonu Benedikts, með brúðarkjóla, sem hún er búin að velja fyrir þær. Vandamálið er að þeir eru alveg eins.

Hugmynd og handrit er eftir Heklu Elísabetu Aðalsteinsdóttur, Jón Gunnar Geirdal og Kristófer Dignus. Leikstjóri er Kristófer Dignus en hann leikstýrði einnig Jarðarförin mín. Laddi fer sem fyrr með hlutverk Benedikts, Ragnheiður K. Steindórsdóttir fer með hlutverk séra Ólafar, Ævar Þór Benediktsson og Birna Rún Eiríksdóttir fara með hlutverk unga parsins og Harpa Arnardóttir og Mario Glodek fara með hlutverk Sigríðar og Luis. Ungu stúlkurnar Sísí og Jasmín eru leiknar af Birtu Hall og Björk Friðriksdóttur.

Það er Glassriver sem framleiðir þættina sem kemur inn í Sjónvarp Símans Premium um páskana. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson